Steve Bruce, stjóri Newcastle, hefur miklar mætur á David Moyes, stjóra West Ham, en liðin mætast einmitt í hádeginu í dag í ensku úrvalsdeildinni.
„Eftir það frábæra starf sem hann vann hjá Everton, þá fékk hann draumastarfið en fékk ekki nógu langan tíma þar. Hann hefur sýnt þrautseigju sína og úr hverju hann er gerður. Þess vegna hefur hann verið svona lengi í ensku úrvalsdeildinni,“ sagði Bruce á blaðamannafundi í gær.
„Hann hefur sýnt það og sannað hversu góður stjóri hann er og hann er nú þegar kominn með mitt atkvæði sem stjóri ársins.“
„Það að ná West Ham í topp fjóra, og ekki bara það heldur einnig leikmennirnir sem hafa blómstrað undir hans stjórn.“
„Ég er virkilega ánægður fyrir hönd Moyes.“
Newcastle mætir West Ham í fyrsta leik ensku úrvalsdeildarinnar í dag klukkan 11:30. West Ham er í harðri baráttu um sæti í Meistaradeildinni en sigur Newcastle þýðir að liðið kemst 9 stigum fyrir ofan fallsæti. Fyrri leikur liðanna endaði með 0-2 sigri Newcastle.