Þessi leiktíð í ensku úrvalsdeildinni hefur einkennst af meiðslum og eru aðeins fimm útileikmenn sem hafa spilað allar mínútur síns liðs í deildinni í vetur og eru það Ollie Watkins, Harry Maguire, Pierre Emile-Hojbjerg, Thomas Soucek og James Ward-Prowse.
DailyMail birti lista þar sem sjá má lista yfir þá útileikmenn sem hafa spilað flestar mínútur fyrir sín lið í deildinni og vekur athygli að Jonjo Shelvey er leikjahæstur fyrir Newcastle þrátt fyrir að hafa aðeins spilað 25 leiki, það segir kannski sitt um árangur liðsins í deildinni. Hér að neðan má sjá listann:
Arsenal – Granit Xhaka (2150 mínútur)
Aston Villa – Ollie Watkins (2700 mínútur)
Brighton – Ben White (2655 mínútur)
Burnley – Ashley Westwood (2781 mínútur)
Chelsea – Mason Mount (2366 mínútur)
Crystal Palace – Cheikhou Kouyate (2494 mínútur)
Everton – Michael Keane (2450 mínútur)
Fulham – Tosin Adarabioyo (2430 mínútur)
Leeds – Stuart Dallas (2780 mínútur)
Leicester – Youri Tielemans (2728 mínútur)
Liverpool – Andy Robertson (2756 mínútur)
Manchester City – Ruben Dias (2485 mínútur)
Manchester United – Harry Maguire (2790 mínútur)
Newcastle – Jonjo Shelvey (1987 mínútur)
Sheffield United – George Baldock (2249 mínútur)
Southampton – James Ward-Prowse (2790 mínútur)
Tottenham – Pierre Emile-Hojbjerg (2790 mínútur)
West Brom – Darnell Furlong (2302 mínútur)
West Ham – Thomas Soucek (2790 mínútur)
Wolves – Conor Coady (2674 mínútur)