Framtíð Tammy Abraham er í mikilli óvissu hjá Chelsea en Thomas Tuchel, þjálfari Chelsea, skildi hann eftir utan hóps fyrir leik liðsins í undanúrslitum FA bikarsins í dag. Tammy er markahæstur í bikarkeppninni á tímabilinu með fjögur mörk en fær ekki tækifæri til að bæta við því fimmta er Chelsea tekur á móti Manchester City.
Tammy glímir ekki við nein meiðsli og hefur æft vel eftir að hann jafnaði sig á ökklameiðslum sem hann glímdi við.
Fjarvera hans frá liðinu í dag varpar fram óvissu um framtíð hans hjá félaginu, allavega á meðan Thomas Tuchel er við stjórn. Tuchel hefur notað kappann lítið frá því að hann tók við af Frank Lampard í janúar. Það er því nokkuð ljóst að Tuchel hefur lítinn áhuga á leikmanninum og mun klúbburinn hlusta á tilboð í leikmanninn í sumar segir í frétt Daily Mail.