Rétt í þessu lauk undanúrslitaleik Chelsea og Manchester City í FA-bikarnum á Wembley. Chelsea hafði betur í leiknum og unnu 1:0 sigur sem þýðir að Chelsea hafa tryggt sér sæti í úrslitaleik FA bikarsins. Enn er óljóst hvaða liði þeir mæta þar en Leicester og Southampton mætast á morgun og keppa um það hvort liðið mætir Chelsea.
Fyrri hálfleikur var nokkuð bragðdaufur og ljóst að hvorugt liðið vildi gera mistök. Chelsea voru þó ívið sterkari. Strax á 7. mínútu kom Hakim Ziyech boltanum í netið eftir stendingu frá Timo Werner. Það mark fékk þó ekki að standa og var dæmt af vegna rangstöðu.
Á 55. mínútu voru þeir félagar aftur á ferðinni en þá kom Ziyech Chelsea yfir eftir sendingu frá Werner. Pulisic kom boltanum í netið fyrir Chelsea í uppbótartíma en það mark var dæmt af vegna rangstöðu. Fleiri mörk voru ekki skoðuð og Chelsea leika því til úrslita í FA-bikarnum. Nú er því ljóst að Manchester City eiga ekki lengur möguleika á fernunni.
Chelsea 1 – 0 Manchester City
1-0 Ziyech (´55)