Aron Sigurðsson skoraði fyrir lið sitt, Union St. Gilloise í belgísku B-deildinni í kvöld. Í hollensku B-deildinni spilaði Elías Már Ómarsson allan leikinn með Excelsior í jafntefli.
Aron skoraði síðasta mark St. Gilloise í 0-4 sigri á varaliði Club Brugge. Aron og félagar eru langefstir í B-deildinni, eru með 21 stigs forskot á liðið í öðru sæti.
Elías Már var þá á sínum stað í fremstu víglínu Excelsior sem gerði 1-1 jafntefli við Telstar á útivelli. Honum tókst ekki að setja boltann í netið að þessu sinni. Excelsior siglir lignan sjó um miðja deild.