Dimitar Berbatov, fyrrum leikmaður Tottenham hefur varað Harry Kane, framherja liðsins um að stuðningsmenn Tottenham gæti snúist gegn honum ef hann ákveður að yfirgefa félagið.
Harry Kane er orðaður við brottför frá Tottenham og hafa lið á borð við Manchester United, Manchester City og Real Madird, öll augastað á framherjanum.
Berbatov yfirgaf Tottenham á sínum tíma og gekk til liðs við Manchester United.
„Ef hann fer, þá mun hann valda mörgum stuðningsmönnum vonbrigðum. Sumir munu meira að segja snúast gegn honum, þannig er fótbolti,“ sagði Berbatov í viðtali hjá Betfair.
Harry Kane er orðinn 27 ára og hefur ekki unnið neinn risatitil á sínum ferli. Talið er að titlaleysi Tottenham spili mikið inn í þá mynd að hann íhugi brottför frá Tottenham.
„Það mun vera sárt fyrir hann ef hann horfir aftur um farinn veg þegar ferlinum lýkur og hefur ekki orðið Englandsmeistari þar sem hann er einn besti framherji heims um þessar mundir,“ sagði Berbatov, fyrrverandi framherji Tottenham.