Þýska lögreglan hefur hafið rannsókn á athæfi Youssoufa Moukoko, leikmanni Dortmund eftir að hann var sakaður um að hafa læst kærustu sína inn í íbúð sinni gegn hennar vilja.
Moukoko, sem er 16 ára gamall, á að hafa átt í miklum deilum við kærustu sína sem endaði síðan með því að hann læsti hana inni og hélt á æfingu með Dortmund.
Samkvæmt heimildum La Gazetta dello Sport, á kærasta Moukoko að hafa hringt í lögregluna sem mætti og hleypti henni út úr íbúðinni.
Þýska lögreglan hefur ákveðið að hefja rannsókn á atvikinu.
Moukoko er talinn vera mikið efni í knattspyrnuheiminum en hann er yngsti leikmaðurinn í sögu Dortmund til að spila leik í þýsku úrvalsdeildinni og Meistaradeild Evrópu.