Virgil van Dijk hefur fengið þau skilaboð frá Liverpool um að gleyma þeirri hugmynd að spila á Evrópumótinu með Hollandi í sumar. Ensk blöð fjalla um málið.
Van Dijk hefur ekki spilað síðan í október þegar hann sleit krossband, hann hefur vonast til þess að spila á þessu tímabili og ná Evrópumótinu.
Samkvæmt enskum blöðum hefur Jurgen Klopp talað við Van Dijk og beðið hann að reyna ekki að taka þátt í Evrópumótinu.
Frank de Boer þjálfari Hollands heldur enn í vonina um að fá Van Dijk í sínar raðir. „Ég rætt við hann, hann er að byrja að æfa á grasi. Það getur komið bakslag, vika eða tvær og hann spilar ekkert með Liverpool,“ sagði de Boer.
„Við sjáum hvað gerist, ég set ekki neina pressu á hann. Hann gerir það sjálfur og verður að hafa sjálfstraust í þetta.“