Chelsea tryggði sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu í kvöld með samanlögðum 2-1 sigri á Porto. Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea gerði sér grein fyrir því fyrir leik kvöldsins að hann yrði erfiður.
„Við sættum okkur við það að þetta yrði mjög erfið barátta í kvöld. Þetta var kannski ekki skemmtilegasti leikurinn til að horfa á en frá hliðarlínunni séð var þetta spennuþrunginn og hraður leikur.“
„Þetta var mikil barátta, það er mjög erfitt að spila á móti þessu liði og losna undan þeirra pressu. Þeir búa yfir góðu flæði í sóknarleiknum og eru agressívir í sínum aðgerðum. Þeir skipta um stöður í sífellu, koma að þér aftanfrá, taka utanáhlaup og við þurftum að aðlaga leik okkar töluvert. Með hverri mínútu sem leið stóðum við okkur betur eftir erfiða byrjun.“
Tuchel segir að Chelsea hafi átt meira skilið í kvöld en það sé sanngjarnt að liðið sé komið áfram í undanúrslit keppninnar.
„Við vörðumst vel og áttum skilið að halda markinu hreinu. Við áttum betri færi í leiknum, ekki mörg en betri færi. Við náðum ekki að klára þau með marki svo við þurftum að halda fókus og leikmennirnir gerðu það. Á heildina litið áttum við skilið að sigra Porto, þetta voru erfiðar 180 mínútur.“
„Við þurftum að vera varnarsinnaðir. Venjulega er Porto lið sem getur látið önnur lið spila undir getu, Manchester City og Juventus lenu í því í riðlakeppninni. Gegn Porto verður maður að sætta sig við að hlutirnir verða erfiðir.“
Eina mark leiksins kom á síðustu mínútu uppbótartíma.
„Hluti af uppleggi okkar var að leyfa ekki hinu liðinu að spila sinn leik og við gerðum það í dag. Allt þar til að þeir áttu heppnisskot á síðustu mínútunni, gáfum við ekki færi á okkur. Við klúðruðum nokkrum skyndisóknum og lokasnertingum á síðasta þriðjungi en við erum með ungt lið. Við vorum með tvo leikmenn sem skoruðu sín fyrstu mörk í Meistaradeild Evrópu í fyrri viðureigninni og við verðum að sætta okkur við okkar aðstæður.“
„Það voru forréttindi að fylgjast með baráttu leikmannanna og að vera á hliðarlínunni að hjálpa þeim,“ sagði Thomas Tuchel, knattspyrnustjóri Chelsea eftir að liðið hafði tryggt sér sæti í undanúrslitum Meistaradeildar Evrópu.