Luke Shaw, vinstri bakvörður Manchester United, átti á sínum tíma varaplan ef draumur hans um að gerast atvinnumaður í knattspyrnu hefði ekki ræst.
Luke Shaw hefur átt virkilega gott tímabil í liði Manchester United og hefur unnið sér inn fast sæti í byrjunarliði liðsins eftir brösótt gengi sem var þjakað af meiðslavandræðum.
Í spurt og svarað, viðtali sem birtist á heimasíðu Manchester United, var Shaw spurður að því hvað hann hefði viljað starfa við ef hann væri ekki knattspyrnumaður.
„Ég horfi mikið á þáttaraðir tengdar lögreglustörfum og sakamálum og ég hef mikinn áhuga á slíku starfi. Ég tel að ef ég hefði ekki orðið knattspyrnumaður þá gæti ég verið að vinna í einhverskonar löggæslustarfi. Ég myndi segja að ég væri þá lögreglumaður,“ var svar Luke Shaw, vinstri bakvarðar Manchester United.
Shaw gekk til liðs við Manchester United frá Southampton árið 2014 og síðan þá hefur hann leikið 178 leiki fyrir félagið, skorað 3 mörk og gefið 17 stoðsendingar. Þá á hann að baki 9 landsleiki fyrir enska landsliðið