Evrópumeistarar Bayern Munchen, eru úr leik í Meistaradeild Evrópu eftir tap á útivallarmörkum gegn Paris Saint-Germain í 8-liða úrslitum keppninnar. Einvígi liðanna endaði með 3-3 jafntefli en PSG skoraði fleiri útivallarmörk.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð knattspyrnustjórans Hansi Flick, sem stýrði Bayern Munchen til sigurs í keppninni í fyrra. Hann hefur verið orðaður við þjálfarastarfið hjá þýska landsliðinu en Joachim Löw, núverandi landsliðsþjálfari, hættir með liðið eftir Evrópumótið í sumar.
Raphael Honigstein, sérfræðingur um þýska boltann hjá BBC, telur að tapið í kvöld geri það að verkum að líklegra sé nú en áður að Hansi Flick verði næsti landsliðsþjálfari Þýskalands, sem er einmitt með Íslandi í riðli í undankeppni HM.
„Sigur í kvöld hefði styrkt stöðu hans hjá félaginu en nú þegar þeir eru dottnir úr leik í Meistaradeild Evrópu tel ég það líklegar að hann muni yfirgefa félagið og taka við þýska landsliðinu,“ skrifar Honigstein á vefsíðu BBC.
Hann segir pressu á forráðamönnum Bayern að greiða fljótt úr þessari óvissu er snýr að knattspyrnustjórastöðu félagsins. Yfirgefi Hansi Flick, Bayern Munchen, er talið að Julian Nagelsmann, knattspyrnustjóri RB Leipzig, sé líklegastur til þess að taka við knattspyrnustjórastöðunni hjá Bayern.