Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United, hefur varað Jesse Lingard, sem er nú á láni frá félaginu hjá West Ham, að ganga til liðs við Arsenal.
Lingard hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga hjá West Ham eftir að hafa ekki verið í náðinni hjá Ole Gunnar Solskjær, knattspyrnustjóra Manchester United.
Lingard hefur spilað 9 leiki með West Ham, skorað 8 mörk og gefið 4 stoðsendingar. Frammistöður hans hafa vakið athygli og unnu honum meðal annars inn sæti í enska landsliðinu á ný.
Miklar vangaveltur eru um það hvað Lingard gerir að yfirstandandi tímabili loknu. Mun hann snúa aftur til Manchester United eða leita á önnur mið. Arsenal er talið hafa áhuga á kappanum en Ferdinandi vill ekki sjá það að Lingard gangi til liðs við Lundúnafélagið.
Hann telur að það gæti verið erfitt fyrir Lingard að heilla stuðningsmenn Arsenal og Ferdinand telur að stuðningsmenn liðsins vilji ekki að félagið kaupi leikmanninn.
Lingard og stuðningsmenn Arsenal eiga sér sögu en í leik Manchester United og Arsenal árið 2019 á Emirates Stadium, heimavelli Arsenal, skoraði Lingard mark og fagn hans sló ekki í gegn.
„Það hvernig hann fagnaði og tók fór ekki vel í stuðningsmenn Arsenal. Hann vanvirti Emirates völlinn á slíkan hátt sem hafði ekki sést áður,“ sagði Ferdinand í viðtali á Youtube rásinni FIVE.
West Ham vill fá Lingard til liðs við sig en Ferdinand telur öruggt að það verði slegist um leikmanninn.
„West Ham munu þurfa að berjast fyrir honum en hann er ekki á leið til Arsenal fram yfir West Ham. Það munu önnur lið berjast um hann en hann kemur ekki nálægt Arsenal,“ sagði Rio Ferdinand, fyrrverandi leikmaður Manchester United