Þeir leikmenn Leicester City sem voru gripnir glóðvolgir eftir að hafa brotið sóttvarnarreglur með því að mæta í partý í húsnæði eins leikmannsins, eiga von á köldum móttökum frá liðsfélögum sínum er þeir snúa aftur til æfinga á morgun.
Leikmennirnir sem um ræðir eru þeir James Maddison, Ayoze Perez og Hamza Choudhoury en samkvæmt heimildum DailyMail, gætir mikillar óánægju með hegðun leikmannanna innan leikmannahóps Leicester City sem er í harðri baráttu um Evrópusæti í ensku úrvalsdeildinni. Þá var Harvey Barnes einnig í partýinu en hann er frá vegna meiðsla og mætir ekki til æfinga.
Leikmennirnir voru ekki í leikmannahóp Leicester í leiknum gegn West Ham um síðustu helgi sem endaði með tapi.
Brendan Rodgers, knattspyrnustjóri Leicester City, sakaði leikmennina um vanvirðingu gagnvart bresku þjóðinni og bannaði leikmönnunum að mæta á æfingu í síðustu viku eftir að hafa frétt af atvikinu.
Það sem fór mest í taugarnar á liðsfélögum leikmannanna var tímapunktur þessarar hegðunar. Leicester er í harðri baráttu um laust sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili og liðið vill alls ekki endurtaka leikinn frá síðasta tímabili þar sem markmiðið um sæti í Meistaradeildinni, náðist ekki.