Ítalía og Ísland mættust í æfingaleik í Flórens á Ítalíu í dag. Leiknum lauk með 1-1 jafntefli en leikið var á æfingasvæði ítalska knattspyrnusambandsins í Flórens.
Þorsteinn Halldórsson, þjálfari íslenska landsliðsins gerði sjö breytingar á liðinu frá tapinu gegn Ítalíu á dögunum. Sandra Sigurðardóttir, Hafrún Rakel Halldórsdóttir, Anna Björk Kristjánsdóttir, Andrea Rán Hauksdóttir, Hallbera Guðný Gísladóttir, Sveindís Jane Jónsdóttir og Berglind Björg Þorvaldsdóttir, komu allar inn í byrjunarlið íslenska landsliðsins.
Leikurinn byrjaði ekki vel fyrir íslenska landsliðið því strax á fyrstu mínútu komust Ítalir yfir með marki frá Valentinu Giacinti eftir stoðsendingu frá Valentinu Bergamaschi.
Þannig stóðu leikar allt þar til á 40. mínútu þegar að Karólína Lea Vilhjálmsdóttir skoraði eftir stoðsendingu frá Sveindísi Jane Jónsdóttur.
Fleiri mörk voru ekki skoruð í leiknum sem endaði með 1-1 jafntefli. Þar með lýkur landsliðsverkefninu hjá íslenska landsliðinu. Ekki náðist að vinna sigur á Ítalíu en leikirnir tveir vafalaust kærkomnir fyrir komandi átök liðsins undir stjórn Þorsteins en þetta voru hans fyrstu leikir með liðið.