Sjónvarpsþáttur 433 er á dagskrá Hringbrautar í kvöld klukkan 21:30 en þátturinn verður sýndur á sama tíma á vefnum.
Í þætti kvöldsins verður Guðni Bergsson formaður KSÍ til viðtals, hann ræðir COVID málefni fótboltans og hvað sambandið hefur gert til að vinna fyrir hagsmuni hreyfingarinnar.
Guðni ræðir málefni landsliðanna sem hafa verið í eldlínunni síðustu vikur.
Þáttinn má sjá í heild hér að neðan.