Vefmiðillinn 90min.com, tók saman lista af fallegustu knattspyrnuvöllum heimsins. Hásteinsvöllur, heimavöllur ÍBV í Vestmannaeyjum er eini knattspyrnuvöllurinn á Íslandi sem kemst á lista.
Blaðamenn 90min.com, setja Hásteinsvöll í 14. sæti á listanum og telja þeir völlinn meðal annars skáka heimavöllum Manchester United og Real Madrid.
„Hásteinsvöllur er staðsettur á Heimaey og þó völlurinn geti ekki tekið marga áhorfendur í sæti, bætir umhverfi vallarins það upp,“ segir í umsögn 90min.com um Hásteinsvöll.
Einu sæti ofar en Hásteinsvöllur á listanum er þjóðarleikvangur Englendinga, Wembley í Lundúnum.
Umfjöllun 90min.com um fallegustu knattspyrnuvelli í heiminum má lesa hér.