Íslendingar voru í eldlínunni í ensku deildarkeppninni í kvöld.
Daníel Leó Grétarsson, varnarmaður Blackpool, var í byrjunarliði liðsins og spilaði allan leikinn í 0-0 jafntefli gegn Accrington Stanley í ensku C-deildinni.
Blackpool er eftir leikinn í 5. sæti deildarinnar með 65 stig eftir 39 leiki.
Í ensku D-deildinni stóð Jökull Andrésson í marki Exeter sem tapaði 2-1 á útivelli gegn Barrow. Exeter er eftir leikinn í 8. sæti deildarinnar með 60 stig eftir 40 leiki, tveimur stigum frá umspilssæti.