Forráðamenn Arsenal eru farnir að horfa til þess að reyna kaupa Jesse Lingard af Manchester United í sumar. Lingard hefur gengið í gegnum endurnýjun lífdaga hjá West Ham þar sem að hann er á láni.
Frammistöður Lingard með West Ham, unnu honum inn sæti enska landsliðshópnum og hann er nú í baráttu um að komast á Evrópumótið með landsliðinu í sumar.
Óvíst er hvort Lingard vilji snúa aftur til Manchester United þar sem að spilatími hans þar hefur verið af skornum skammti undir stjórn Ole Gunnar Solskjær.
Lingard hefur spilað 8 leiki með West Ham á tímabilinu, skorað sex mörk og gefið 4 stoðsendingar.