Nýtt tímabil í sænsku úrvalsdeildinni er hafið og í dag eru fjórir leikir á dagskrá.
Mikið hefur verið rætt og ritað um framtíð Ísaks Bergmann hjá sænska liðinu Norrköping en Ísak vakti verðskuldaða athygli á síðasta tímabili fyrir frammistöður sínar og nokkur af stærstu liðum Evrópu voru á eftir kappanum.
Hinn 18 ára gamli Ísak Bergmann er hins vegar enn þá hjá Norrköping og reikna má fastlega með því að hann verði í eldlínunni er Norrköping tekur á móti Sirius klukkan 15:30 í dag.
Göteborgs-Posten telur Ísak vera efnilegasta leikmann deildarinnar af þeim leikmönnum sem eru fæddir eftir árið 2000.
„Hann er bara 18 ára en hefur yfir að búa mikilli reynslu úr deildinni. Hann býr yfir hæfileikum sem fáir geta státað sig af og hefur verið eftirsóttur af stærstu liðum Evrópu. Ef leikur hans heldur áfram að þróast á þessu tímabili er aðeins tímaspursmál þangað til stóru klúbbarnir rífa upp veskið og kaupa kappann,“ stóð í umsögn Göteborgs-Posten um Ísak Bergmann.