Harry Kane, leikmaður Tottenham gæti verið í leit að nýrri áskorun eftir tímabilið. Kane hefur skorað 216 mörk á sínum ferli með Tottenham en hefur ekki enn tekist að vinna titil með félaginu.
Framtíð Kane hjá Tottenham hefur verið mikið í umræðunni en titlaleysi gæti farið að angra leikmanninn sem er orðinn 27 ára.
Fari það svo að Kane muni yfirgefa Tottenaham þá er Manchester City líklegasta liðið, samkvæmt veðbankanum Betfair, að næla í framherjann.
Næst á eftir Manchester City koma erkifjendurnir í Manchester United, Lundúnaliðið Chelsea og franska liðið PSG þar sem fyrrum knattspyrnustjóri Tottenham, Mauricio Pochettino er við stjórnvölinn.
Harry Redknapp, fyrrverandi knattspyrnustjóri Tottenham, kom hins vegar með varnarðarorð og beindi þeim að Harry Kane í viðtali á Talksport. Redknapp vill meina að grasið er ekki alltaf grænna annars staðar. Það að Kane skipti um félag sé ekki ávísun á að hann muni vinna titla.
Redknapp telur mikilvægi Kane hjá Tottenahm vera gífurlega mikið.
„Hann er leiðtoginn. Fyrir mér er hann besti framherjinn af þessu tagi í heiminum. Hann er algjör atvinnumaður, frábær náungi. Ef hann fer frá Tottenham þá er ekki hægt að koma í hans stað,“ sagði Harry Redknapp á Talksport.