Það varð ljóst á dögunum að framherjinn Sergio Aguero myndi yfirgefa Manchester City eftir yfirstandandi tímabil. Hann hefur verið orðaður við fjölmörg lið, nú síðast Leeds United. Þetta kemur fram á 90min.com.
Marcelo Bielsa, stjóri Leeds, ku ekki vera glaður með frammistöður Rodrigo þar sem af er tímabili. Leikmaðurinn var keyptur til félagsins fyrir metfé síðasta sumar. Bielsa telur því að Aguero gæti verið góður kostur fyrir liðið.
Argentínumaðurinn hefur verið orðaður við lið á Spání og Ítalíu sem og í Frakklandi, Bandaríkjunum og Mið-Austurlöndum. Af öðrum liðum í ensku úvalsdeildinni hafa Arsenal og West Ham til að mynda verið nefnd til sögunnar.
Mikel Arteta, stjóri Arsenal, vildi ekki útiloka neitt er hann var spurður út í Aguero. Hann sagði einfaldlega ,,við munum sjá hvað gerist.“ Spánverjinn vann með Aguero þegar hann var aðstoðarstjóri hjá City.
Aguero hefur skorað yfir 250 mörk og unnið 10 titla á áratug sínum hjá City, Pep Guardiola, stjóri liðsins, hefur farið fögrum orðum um kappann og sagt að skarð hans verði ómögulegt að fylla.