Tímabil Arsenal hingað til hefur valdið vonbrigðum. Liðið á aðeins möguleika á titli í Evrópudeildinni og hefur spilað langt undir væntingum í ensku úrvalsdeildinni.
Arsenal tekur á móti Slavia Prag í kvöld í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar og eini möguleiki liðsins á sæti í Meistaradeild Evrópu á næsta tímabili er að vinna Evrópudeildina. Arteta segir að nú snúist þetta um hvort Arsenal takist „allt eða ekkert.“
„Við viljum komast áfram í undanúrslit keppninnar og vitum hversu mikilvægur þessi leikur er,“ sagði Arteta á blaðamannafundi fyrir leik kvöldsins.
Arsenal tapaði nokkuð sannfærandi fyrir Liverpool um síðustu helgi og Arteta skorar á leikmenn að stíga upp en liðið hefur hlotið mikla gagnrýni.
„Þegar gagrýnin snýst að okkar spilamennsku gegn Liverpool þá þurfum við bara að taka því vegna þess að hún á rétt á sér. Nú þurfum við að svara á vellinum og sýna hvað við getum,“ sagði Mikel Arteta, knattspyrnustjóri Arsenal.
Leikur Arsenal og Slavia Prag í 8-liða úrslitum Evrópudeildarinnar hefst klukkan 19 í kvöld.