Jamie O’Hara, fyrrverandi leikmaður Tottenham telur að Manchester United geti gleymt því að reyna næla í Gulldreng Evrópu, framherjann Erling Braut Haaland, framherja Dortmund.
Haaland hefur farið á kostum með Dortmund eftir að hann gekk til liðs við liðið frá Red Bull Salzburg og talið næsta víst að hann fari frá Dortmund í sumar. Stærstu félög Evrópu eru á eftir kappanum.
„Þeir (Manchester United) geta ekki fengið Haaland til liðs við sig. Mér þykir það leitt en þeir eru ekki nægilega góðir, afhverju ætti hann að fara til Manchester United?,“ sagði O’Hara í viðtali á Talksport.
Hann telur að Manchester United geti um þessar mundir ekki barist við lið á borð við Manchester City, Real Madrid og Barcelona sem hafa öll sýnt áhuga á að fá Haaland til liðs við sig.
„Haaland mun ekki fara til Manchester United þar sem að er talið að liðið gæti unnið eitthvað. Hann mun fara þangað sem hann vinnur allt,“ sagði O’Hara við Talksport.
Haaland hefur skorað 34 mörk í 37 leikjum fyrir Dortmund í þýsku úrvalsdeildinni.