Emmanuel Frimpong fyrrum miðjumaður Arsenal á sér þann draum um að leika í klámmynd og í henni vill hann hafa tuttugu konur frá Rússlandi með sér.
Frimpong lagði skóna á hilluna árið 2017 eftir að hafa verið meiddur og ekkert félag vildi fá hann. Frimpong er 29 ára gamall.
Miklar væntingar voru gerðar til Frimpong þegar hann var að koma upp í gegnum unglingastarf Arsenal. Arsene Wenger gaf honum mikið traust en Frimpong var ekki alltaf með hausinn við fótboltann.
Hann fór á flakk og lék meðal annars með Ufa í Rússlandi og naut þess að vera þar. Í dag á hann sér þann draum að verða klámstjarna en Frimpong á litla sem enga fjármuni í dag.
„Ég vil koma aftur til Ufa og leika í klámmynd með tuttugu stelpum frá Rússlandi,“ segir Frimpong í viðtali við fjölmiðla í Rússlandi.
„Stelpurnar þarna eru oft að skrifa mér og biðja mig að koma, ég á bara ekki pening fyrir flugmiða. Ég elska konurnar í Rússlandi.“