En aðgerðin fór illilega úrskeiðis og nú hefur Jean–Pierre legið í dái í 39 ár. Ein af ástæðunum fyrir að aðgerðin fór úrskeiðis var að verkfall stóð yfir á sjúkrahúsinu og því vantaði lækna til vinnu. Svæfingalæknir var í þjálfun og átti að vakta átta sjúklinga samtímis.
Í aðgerðinni voru mörg mistök gerð og það reyndist örlagaríkt fyrir Jean–Pierre. Hann fékk ekki nóg súrefni á meðan á aðgerðinni stóð og komst ekki aftur til meðvitundar.
Hann var þá 34 ára, liðsmaður franska landsliðsins og hafði leikið 22 leiki fyrir það. Hann var meðal fyrstu svörtu leikmannanna sem komust í landsliðið. Samstarf hans og Marius Tresor í vörninni þótti frábært en Tresor var einn besti varnarmaður heims á sínum tíma.
Jean–Pierre er nú 73 ára og er enn á lífi. Eiginkona hans, Bernadette Adams, hefur alla tíð verið við hlið hans og annast hann. Hann getur ekki tjáð sig eða látið tilfinningar í ljós en hann andar af sjálfsdáðum, borðar sjálfur og hóstar. „Á Facebook segir fólk að ég eigi bara að taka úr sambandi . . . En hann er ekki tengdur við neinar vélar! Ég er ekki nógu hugrökk til að binda enda á þetta og hætta að gefa honum mat og drykk,“ sagði Bernadette í samtali við The Sun.