Thierry Henry segir að hann muni einn daginn snúa aftur á samfélagsmiðla eftir að hafa lokað öllum aðgöngum sínum síðastliðinn föstudag. Hann segir í viðtali við Good Morning Britain að það þurfi að gera breytingar til þess að miðlarnir verði öruggari.
,,Þetta (samfélagsmiðlar) er ekki öruggur staður eins og er. Ég er að tala um einelti og áreiti, fólk fremur sjálfsvíg út af þessu,“ sagði Arsenal-goðsögnin og bætti við að það væri athugavert að myndböndum af mörkum sé eytt út vegna höfundarréttar á meðan rasísk ummæli fái að standa.
,,Það er erfitt að fylgjast með öllu en gæti þetta verið öruggara? Þetta er frábært tæki en fólk notar þetta sem vopn.“
Það er algengt vandamál á samfélagsmiðlum að fólk komi fram undir öðru nafni en þeirra eigin. Það gerir þeim kleift að skrifa það sem þau vilja án þess að þurfa að bera ábyrgð á því. Henry vill breyta þessu.
,,Af hverju er ekki hægt að hafa það þannig að fólk þurfi vegabréfanúmer eða kennitölu til að nota aðganginn sinn?“
Henry bætti að lokum við að hann ætlaði sér að snúa aftur á samfélagmiðla þegar þeir verði öruggari. Hann var með 15 milljónir fylgjenda á aðgöngum sínum áður en hann lokaði þeim.