Alex Þór Hauksson, spilaði allan leikinn í 4-1 tapi Íslands gegn Rússlandi á Evrópumótinu í Ungverjalandi í kvöld. Hann mætti á blaðamannafund íslenska liðsins eftir leik.
Alex segir það góða upplifun að vera fulltrúi Íslands á stórmóti.
„Það er virkilega gaman að prófa sig á sviði þeirra bestu, þetta eru topp 16 lið í Evrópu og bara virkilega gaman að máta sig við frábæra leikmenn.“
En hvernig upplifði hann þróun leiksins í kvöld?
„Þetta var kaflaskiptur leikur af okkar hálfu, við byrjuðum með fína stjórn varnarlega en síðan kemur bara slæmur kafli, mikið af litlum smáatriðum sem klikka sem bara einfaldlega verða að vera í lagi á svona stóru sviði. Það fer illa með okkur.“
„Hins vegar fannst mér jákvætt hjá liðinu að við komum okkur saman og gáfum allt fyrir okkar land og eigum mun betri síðari hálfleik sem við munum klárlega byggja á í þessu móti.“
Hann segir að íslenska liðið trúi og treysti á leikskipulag þjálfarateymisins þrátt fyrir tapið í kvöld.
„Við höfum áður lent í þessari stöðu, við höfum mikinn karakter í okkar liði. Eftir fyrsta markið þá vorum við bara staðráðnir í því að halda okkar leikskipulagi, við trúum að það fram í rauðan dauðann og við ætluðum bara að vera þolinmóður.“
Hann tekur ekkert af Rússum en veit að íslenska liðið getur gert betur.
„Rússarnir voru mjög góðir í að finna millisvæði sem við vildum loka, sérstaklega í fyrri hálfleik. Ég ætla ekki að taka neitt af Rússunum, þeir eru flott lið með flotta leikmenn en við hefðum auðvitað átt að gera betur.“
Hann hefur trú á því að íslenska liðið geti stigið upp eftir þetta tap.
„Við getum allir verið sammála um að við getum stigið upp og við ætlum bara að horfa fram veginn. Þetta er langt mót, tveir mikilvægir leikir eftir. Við mætum bara í stríð við Dani,“ sagði Alex Þór Hauksson, leikmaður íslenska u-21 árs landsliðsins.