Rúnar Már Sigurjónsson hefur skrifað undir tveggja ára samning við CFR Cluj, meistarana í Rúmeníu. Rúnar kemur til félagsins frá Astana í Kazakhstan.
Rúnar er þrítugur miðjumaður sem ólst upp á Sauðárkróki en lék með Val hér á landi áður en hann hélt í atvinnumennsku árið 2013.
Rúnar hefur leikið í Sviss, Svíþjóð, Hollandi og nú síðustu tæpu tvö árin í Kazakhstan.
Miðjumaðurinn knái hefur verið í nokkur stóru hlutverki hjá íslenska landsliðinu síðustu mánuði og ár, þá oftar en ekki sem kantmaður.