Andri Fannar Baldursson byrjaði á varamannabekk Bologna þegar þeir tóku á móti Roma í ítölsku deildinni í dag. Gestirnir sigruðu með fimm mörkum gegn einu.
Andri kom inn á á 70. mínútu en þá var skaðinn skeður.
Öll mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleik. Fyrsta mark Roma kom á fimmtu mínútu. Það var sjálfsmark sem Andrea Poli, leikmaður Bologna, skoraði. Á 10. mínútu bætti Edin Džeko öðru marki Roma við og á 15. mínútu skoraði Lorenzo Pellegrini þriðja mark gestanna. Fimmtán mínútur búnar og staðan orðin 0-3 fyrir gestunum.
Á 24. mínútu varð Bryan Cristante leikamaður Roma fyrir því óláni að skora sjálfsmark. Bologna því búnir að minnka muninn í 1-3. Roma gáfu aftur í og á 35. mínútu skoraði Jordan Veretout fjórða mark gestanna. Henrikh Mkhitaryan skoraði fimmta mark Roma á 44. mínútu. Ótrúlegur fyrri hálfleikur.
Ekkert mark var skorað í síðari hálfleik. Eftir leikinn er Roma í fimmta sæti með 21 stig og Bologna er í 12. sæti með 12 stig.
Bologna 1 – 5 Roma
0-1 Andrea Poli (5′)(Sjálfsmark)
0-2 Edin Džeko (10′)
0-3 Lorenzo Pellegrini (15′)
1-3 Bryan Cristante (24′)(Sjálfsmark)
1-4 Jordan Veretout (35′)
1-5 Henrikh Mkhitaryan (44′)