Erlendur leikmaður Einherja á Vopnafirði í 3. deild karla í knattspyrnu er grunaður um að hafa stungið annan mann með hnífi í gleðskap á Akureyri um liðna helgi. Lögreglan á Norðurlandi staðfestir að málið sé nú til rannsóknar hjá sér og farið verði fram á farbann yfir umræddum leikmanni.
Leikmaðurinn sem um ræðir gekk í raðir Einherja í sumar en mikið hafði verið látið með hæfileika piltsins í heimalandi hans. Hann tók þátt í leik liðsins gegn Ægi í Þorlákshöfn á laugardag.
Samkvæmt öruggum heimildum DV voru nokkrir leikmenn Einherja mættir í gleðskap á Akureyri um síðustu helgi. Einn af þeim var ónærgætinn við stúlku í gleðskapnum, að mati þeirra sem höfðu boðið heim til sín. Var leikmönnum Einherja því vísað á dyr. Mennirnir voru ekki ánægðir með þessa ákvörðun en létu sig þó fljótt hverfa.
Einn þeirra snéri hins vegar aftur í íbúðina eftir að búið var að reka þá á dyr, tók upp hníf og stakk einn gestinn. ,,Ég get staðfest að þetta mál er til rannsóknar, það var aðili stunginn hérna á sunnudagsmorguninn. Það voru teknar skýrslur af aðilum máls á sunnudeginum og í gær. Það var ekki farið fram á gæsluvarðhald, það verður farið fram á farbann yfir þeim aðila sem er grunaður um hnífstunguna,“ sagði Jónas Halldór Sigurðsson lögreglufulltrúi á Norðurlandi eystra í samtali við DV.
DV hafði samband við Víglund Pál Einarsson, formann knattspyrnudeildar Einherja, sem vildi fyrst um sinn ekkert kannast við málið þegar það var borið undir hann. ,,Ég held að ég geti ekkert tjáð mig, ég hef ekki hugmynd um þetta,“ sagði Víglundur fyrst en kannaðist svo við handalögmál á Akureyri.
Þegar Víglundi var tjáð að lögreglan á Norðurlandi eystra hefði staðfest að umrætt atvik væri til rannsóknar og farið yrði fram á farbann yfir leikmanni hans virtist hann kannast við málið. ,,Ég veit bara af því að hann lenti í útistöðum á Akureyri um helgina. ég hef ekki fengið neitt annað í hendurnar,“ sagði Víglundur í samtali við blaðamann.
Maðurinn sem varð fyrir árásinni er einnig af erlendu bergi brotinn en hann er óvinnufær eftir árásina samkvæmt heimildum DV. Maðurinn hefur búið hér á landi í fimm ár og komið sér vel fyrir. Hann er ekki í lífshættu. ,,Þetta fór betur en á horfist þegar um hnístunguárás er að ræða, það er er alltaf alvarlegt þegar hnífstunguárás á sér stað,“ segir Jónas Halldór lögreglufulltrúi við DV.