Svona hefst frétt sem The Sun skrifar um Georginu Rodriguez, kærustu knattspyrnustjörnunnar Christiano Ronaldo. Í fréttinni kemur fram að Georgina sé að hala inn fylgjendum á Instagram með rassinum sínum, auk þess sem hann hjálpar henni að græða peninga sem fyrirsæta.
https://www.instagram.com/p/CDhBbKxKxJF/
Georgina hefur verið dugleg þegar kemur að því að deila myndum á Instagram og svo virðist vera sem rassinn á henni sé að vekja afar mikla athygli. „Hún sýnir stórkostlegar línur,“ segir meðal annars um hana í fréttum á meginlandinu.
https://www.instagram.com/p/CFIBOxzqH2u/
Rodriguez og Ronaldo hafa verið saman í um 5 ár en parið hittist fyrsti í Gucci verslun, þar var Rodriguez að vinna þegar Ronaldo kom til að versla. Á síðasta ári spruttu upp sögusagnir um að parið hefði gift sig í leyni en bæði Ronaldo og Rodriguez hafa blásið á sögusagnirnar.
„Við munum gifta okkur einn daginn,“ segir Ronaldo þó. „Það er draumurinn hennar mömmu sem og minn. Svo, einn daginn, af hverju ekki? Hún [Rodriguez] er frábær. Hún er vinur minn og við tölum saman. Ég opna hjarta mitt fyrir henni og hún opnar sitt fyrir mér.“
https://www.instagram.com/p/CENIv0YqEGw/