fbpx
Föstudagur 28.mars 2025
433Sport

Lögreglan að klára rannsókn á því sem gerðist á Hótel Sögu í gær

Hörður Snævar Jónsson
Mánudaginn 7. september 2020 14:32

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Lögreglan á höfuðborgarsvæðinu er að klára rannsókn á máli Phil Foden og Mason Greenwood sem brutu reglum um sóttkví hér á landi í gær. Ensku landsliðsmennirnir fengu tvær íslenskar stúlkur á hótel sitt, þeir voru reknir úr enska landsliðinu í dag vegna atviksins.

Konurnar fóru á Hótel Sögu þar sem enska landsliðið dvaldi, fyrst um sinn var aðeins önnur konan að fara að hitta Mason Greenwood. Henni var skutlað af vinkonu sinni sem snéri við þegar hún var á heimleið þar sem leikmaðurinn Phil Foden hafði áhuga á að hitta hana.

Meira:
Enskir landsliðsmenn brutu reglur hér á landi í gær – Fengu íslenskar stúlkur upp á hótel

Konurnar fóru ekki inn á herbergi leikmannanna heldur var búið að bóka tvö önnur herbergi þar sem þeir gátu hitt íslensku konurnar. Rögnvaldur Ólafsson yfirlögregluþjónn segir málið langt komið en býst ekki við að íþróttir þurfi harðari reglur í kringum leiki vegna atviksins.

Lið sem koma hér til landsins geta aðeins farið á æfingu eða leiki og eiga svo að vera á hóteli sínu, þeim er bannað að hitta aðra einstaklinga en þá sem eru með í ferðalaginu. Leikmaður mætti meðal annars ekki hitta fjölskyldu sína, þessar reglur brutu drengirnir tveir.

„Þetta mál er til rannsóknar hjá lögreglunni á höfuðborgarsvæðinu, það er langt komið. Því lýkur því fljótlega, það þarf meiri reynslu á þetta fyrirkomulag á íþróttunum áður en farið er í breytingar á sóttvarnareglum,“ sagði Rögnvaldur Ólafsson yfirlögregluþjónn.

Þórólfur Guðnason sóttvarnalæknir sló á létta strengi vegna málsins. ,,Ég var að frétta af þessu áðan, mín fyrstu viðbrögð að það ætti að ógilda úrslitin í leiknum og úrskurða sigur okkar megin. Öllu gamni slepptu, það þarf að skoða þetta mjög vel. Þetta er klárlega brot á sóttkví

Meira:
Enskir landsliðsmenn brutu reglur hér á landi í gær – Fengu íslenskar stúlkur upp á hótel

Lokað er fyrir athugasemdir
Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Fékk athyglisverða spurningu varðandi launin – ,,Það er stóra spurningin“

Fékk athyglisverða spurningu varðandi launin – ,,Það er stóra spurningin“
433Sport
Fyrir 7 klukkutímum

Conte gæti svikið lit á Ítalíu

Conte gæti svikið lit á Ítalíu
433Sport
Fyrir 19 klukkutímum

Áfall fyrir Arsenal – Mikil pressa frá Real Madrid

Áfall fyrir Arsenal – Mikil pressa frá Real Madrid
433Sport
Fyrir 20 klukkutímum

Býður heimsfrægum mönnum að mæta á völlinn

Býður heimsfrægum mönnum að mæta á völlinn
433Sport
Í gær

Breyting á félagaskiptaglugganum á Englandi

Breyting á félagaskiptaglugganum á Englandi
433Sport
Í gær

Reyndu að hafa áhrif á hann er þeir hittust á dögunum en allt kom fyrir ekki

Reyndu að hafa áhrif á hann er þeir hittust á dögunum en allt kom fyrir ekki