fbpx
Fimmtudagur 17.október 2024
433Sport

Endurkoma nýbakaðra mæðra á völlinn er þolinmæðisvinna

Sóley Guðmundsdóttir
Laugardaginn 29. ágúst 2020 13:00

Elín Jónsdóttir hefur mikla reynslu í líkamlegri þjálfun óléttra kvenna og nýbakaðra mæðra. Mynd/Anton Brink

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Þjálfarinn Elín Jónsdóttir vill ekki tala um boð eða bönn þegar kemur að æfingum nýbakaðra mæðra. Meginreglan er að hlusta á eigin líkama og að sýna skynsemi.

Elín Jónsdóttir er einn af eigendum heilsu- og líkamsræktarstöðvarinnar Grandi101 þar sem hún starfar einnig sem þjálfari. Hún hefur bæði reynslu sem þjálfari og íþróttakona. Elín heldur, ásamt systur sinni
Jakobínu, utan um MömmuFit tíma á Granda101 þar sem fram fer þjálfun fyrir óléttar konur og nýbakaðar mæður.

„Ég vil helst ekki tala um boð eða bönn þegar kemur að æfingum kvenna á eða eftir meðgöngu/fæðingu. Það er svo mikilvægt að hafa í huga að við erum allar ólíkar og með ólíkan bakgrunn þegar kemur að hreyfingu,“ segir Elín.

Konur í góðu líkamlegu formi yfirleitt fljótari að koma til baka

Elín segir að konur sem eru í mjög góðu líkamlegu formi fyrir og á meðgöngu séu yfirleitt fljótari að koma til baka eftir fæðingu og geti því byrjað að æfa fyrr. „Afrekskonur í íþróttum þekkja líkama sinn yfirleitt vel og geta því margar komið tiltölulega fljótt til baka í sína íþrótt.“

Elín bendir á að meðgangan og fæðingin geti gengið misvel sem hefur sitt að segja. „Ég myndi aldrei ráðleggja konu sem hefði aldrei æft fótbolta að mæta á fótboltaæfingu nokkrum mánuðum eftir fæðingu en hjá vönum fótboltakonum er staðan mögulega önnur. Þær eru auðvitað jafn misjafnar og þær eru margar og sumar koma fyrr til baka en aðrar. Ég held að meginreglan ætti alltaf að vera að hlusta á eigin líkama og vera skynsöm. Forðast æfingar sem meiða eða eru óþægilegar og gefa sér tíma til að koma til baka og muna að það tekur tíma að komast aftur í sitt besta form.“

Mæður í Pepsi-max deildinni

Margar mæður spila fótbolta á Íslandi. Að snúa til baka á völlinn getur verið kúnst. Hver meðganga er einstök og hver fæðing er einstök. Að hlusta á eigin líkama er góð regla. Hér eru góð ráð frá fjórum mæðrum sem allar spila í efstu deild hérlendis. Þær hafa allar sína sögu að segja og veita ráð sem snúa til dæmis að æfingum, meðgöngu, endurkomu á völlinn og samanburð við aðrar konur.

Ana Victoria Cate – KR

Ana ásamt syni sínum. Mynd/Valli

Konur eru mismunandi! Líðan þín á meðgöngu, hvernig fæðingin gekk, hvernig brjóstagjöfin gengur og hversu mikið þú og barnið þitt sofa eru allt partur af þinni eigin sögu. Þú skalt ekki miða þig við aðrar konur. Það er ekkert að því að taka sex vikur eða sex mánuði í að koma sér á völlinn aftur, svo lengi sem þér líður vel og ert örugg þegar þú byrjar. Eftir að þú eignast barn áttarðu þig á því að lífið er meira en fótbolti (klikkað en satt).

Ásgerður Stefanía Baldursdóttir – Valur

Ásgerður Stefanía er leikmaður Vals. Mynd/Sigtryggur Ari

Hlusta á líkamann er númer eitt, tvö og þrjú. Fara eftir þinni sannfæringu en ekki eftir því hvað aðrar konur hafa gert. Eftir á að hyggja hefði ég viljað njóta þess meira að vera á hliðarlínunni. Ég mætti á allar æfingar og tók þátt í öllu. Mér fannst þetta skemmtilegt á meðan á þessu stóð en ég myndi gera annað í dag. Það er mikilvægt að vera stolt af því að koma til baka ef sú er raunin. Að fá traust frá félaginu og þjálfurum er einnig mjög mikilvægt fyrir konur sem eru að koma til baka eftir barnsburð.

Dagný Brynjarsdóttir – Selfoss

Dagný leikur með Selfoss í efstu deild. Mynd/Sigtryggur Ari

Það skiptir miklu máli að hlusta á líkamann. Ef þú finnur fyrir einhvers konar verkjum í grindinni eða annars staðar við ákveðnar æfingar þá skaltu ekki þjösnast á sársaukanum því þú gætir þurft að kljást við verkinn eftir fæðingu. Ég mæli með að vera duglegar með míní teygju og að styrkja mjaðmasvæðið, vinna í grindarbotninum sem og innan á lærum. Ég fór að vinna í því strax tveimur vikum eftir fæðingu. Einnig byrjaði ég að vinna í kviðvöðvunum tveimur vikum eftir fæðingu með mismunandi útgáfum af planka.

Elísa Viðarsdóttir – Valur

Elísa spilar með Val. Mynd/Ernir

Að koma til baka í afreksíþróttir eftir barneign reynir ótrúlega á líkamlega og andlega. Mikilvægt er að miða sig ekki við hvernig maður var áður en maður varð óléttur heldur hafa raunhæfar væntingar. Það eru forréttindi að fá að ganga með barn. Á sama tíma er erfitt að slíta sig frá skilgreiningunni að vera „afreksíþróttakona“ um sinn. Eftir meðgöngu mæli ég með að hlusta á líkamann og forðast samanburð við aðrar konur. Ég reyndi að hafa húmor fyrir sjálfri mér. Það er fyndið að hugsa til baka þegar ég var að mæta á fyrstu fótboltaæfingarnar eftir barnsburð. Hausinn var kominn miklu lengra en líkaminn. Ef maður fer þetta á jákvæðninni og húmornum, en setur smá pressu á sjálfan sig og reynir að bæta sig dag frá degi, verður maður á endanum ótrúlega stoltur af öllu ferlinu og sáttur í eigin líkama.

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Matt Vill framlengir við Víking

Matt Vill framlengir við Víking
433Sport
Fyrir 14 klukkutímum

Adidas tekur Mbappe úr auglýsingu vegna frétta um nauðgun – Bellingham birti óvart upphaflegu myndina

Adidas tekur Mbappe úr auglýsingu vegna frétta um nauðgun – Bellingham birti óvart upphaflegu myndina
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Færa leiktímann á mögulegum úrslitaleik Víkings og Breiðabliks

Færa leiktímann á mögulegum úrslitaleik Víkings og Breiðabliks
433Sport
Fyrir 17 klukkutímum

Tvö lið í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á Hákoni – Sagður líkur einum öflugasta leikmanni síðustu ári

Tvö lið í ensku úrvalsdeildinni hafa áhuga á Hákoni – Sagður líkur einum öflugasta leikmanni síðustu ári
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Cantona urðar yfir stjórnendur United – „Þvílík óvirðing, þetta er hneyksli“

Cantona urðar yfir stjórnendur United – „Þvílík óvirðing, þetta er hneyksli“
433Sport
Fyrir 21 klukkutímum

Tuchel mun þéna vel sem þjálfari Englands – Þetta er upphæðin

Tuchel mun þéna vel sem þjálfari Englands – Þetta er upphæðin