Gylfi deilir myndum af ferðalaginu á Instagram-síðu sinni en þar sést hann ásamt Alexöndru uppi á Sólheimajökli. Þau klifruðu saman upp á jökulinn og borðuðu síðan kvöldmat inni í helli. Þráinn á Sumac sá um matinn í hellinum en hann sá einnig um matinn í brúðkaupinu þeirra.
https://www.instagram.com/p/CDwh0m0J0ar/
Alexandra virðist hafa verið hæstánægð með þetta en hún deilir einnig myndum úr ferðalaginu á Instagram-síðu sinni. „Átti bestu afmælishelgina. Jöklaferð, ísklifur og kvöldmatur inni í helli. Takk Gylfi fyrir að skipuleggja þessa frábæru óvæntu ánægju!“ segir Alexandra á Instagram-síðu sinni.
https://www.instagram.com/p/CDwfStWATpl/
Gylfi og Alexandra giftu sig með pompi og prakt á Ítalíu um sumarið í fyrra en þar var engu til sparað. Margir þjóðkunnir einstaklingar héldu uppi skemmtuninni langt fram á nótt, þar á meðal Sólmundur Hólm, Bríet, Friðrik Dór, Jökull Júlíusson úr Kaleo, Aron Can og Herra Hnetusmjör.