Jón Páll Pálmason hefur verið rekinn sem knattspyrnuþjálfari Víkings Ó. í Lengjudeildinni.
Þetta var staðfest í kvöld en Jón Páll tók við Víkingum fyrir tímabilið og stoppaði ekki lengi.
Víkingar hafa unnið tvo af fyrstu fimm leikjum sínum í deildinni.
Tilkynning Víkings:
Knattspyrnufélagið Víkingur Ó. hefur ákveðið að segja Jóni Páli Pálmasyni upp störfum sem þjálfara félagsins og lætur hann af störfum nú þegar. Leit hefst nú að nýjum þjálfara.
Stjórn Víkings Ó. þakkar Jóni Páli fyrir framlag sitt til knattspyrnunnar hér í Ólafsvík og óskar honum velfarnaðar í framtíðinni.
Félagið mun ekki tjá sig nánar um málið að svo stöddu.