Kevin de Bruyne er klárlega besti leikmaður ensku úrvalsdeildarinnar að mati Roberto Martinez.
Martinez vinnur með De Bruyne hjá belgíska landsliðinu en hann leikur með Manchester City.
,,Augljóslega horfi ég á alla leiki með Kevin. Um daginn sá ég leikinn við Liverpool og þetta var augljóst,“ sagði Martinez við Mirror.
,,Liverpool var besta liðið á tímabilinu og átti titilinn skilið og svo er hægt að segja að Kevin hafi auðveldlega verið besti leikmaðurinn.“
,,Hvernig hann hefur áhrif á leikinn, hvernig hann getur breytt sér í leikmann sem gefur sendingar sem enginn annar getur gert.“