Stuðningsmenn Liverpool eru byrjaðir að skipuleggja hálfgerðar óeirðir þegar Manchester United mætir á Anfield á sunnudag.
Stuðningsmenn Liverpool hafa síðustu ár tekið hressilega á móti liðum þegar stórleikir eru.
Liverpool er á góðri leið með að vinna ensku úrvalsdeildina í fyrsta sinn í 30 ár, erkifjendurnir í United munu reyna allt til að setja stein í götu liðsins.
Stuðningsmenn Liverpool eru hvattir til þess að koma með bjór blys og fána. Rútur andstæðinga Liverpool hafa verið illa leiknar í gegnum árin og varð rúta Manchester City, meðal annars fyrir miklum skemmdum.