Miðjumaðurinn Gedson Fernandes er búinn í læknisskoðun hjá Tottenham.
Frá þessu greinir Sky Sports en Fernandes er við það að ganga í raðir enska félagsins á láni.
Fernandes gerir 18 mánaða samning við Tottenham en hann félagið getur svo keypt hann á 56 milljónir punda.
Um er að ræða efnilegan portúgalskan miðjumann sem hefur vakið alvöru athygli með Benfica.
Fernandes er aðeins 21 árs gamall en á að baki tvo landsleiki fyrir Portúgal.