fbpx
Miðvikudagur 17.júlí 2024
433Sport

Nýjasta stjarnan gefur United von: „Solskjær hefur haft gríðarleg áhrif á líf mitt“

Hörður Snævar Jónsson
Miðvikudaginn 25. september 2019 15:30

Ekki missa af Helstu tíðindum dagsins í pósthólfið þitt

Lesa nánar

Það er ný stjarna komin upp á sjónarsviðið í knattspyrnunni en sá strákur ber nafnið Erling Braut Haaland.

Haaland er 19 ára gamall Norðmaður en hann skrifaði undir samning við RB Salzburg fyrr á þessu ári. Haaland kom til félagsins frá Molde í Noregi þar sem hann skoraði 14 mörk í 39 deildarleikjum sem táningur. Strákurinn er einn allra efnilegasti leikmaður heims og er byrjaður að raða inn mörkum með Salzburg.

Norðmaðurinn hefur skorað 12 mörk í níu deildarleikjum sem er stórkostlegur árangur. Hann skoraði þrennu fyrir lið Salzburg í síðustu viku sem vann sannfærandi 6-2 sigur á Genk í Meistaradeildinni. Haland var að leika sinn fyrsta leik í Meistaradeildinni og er nú aðeins þriðji táningurinn til að skora þrennu í fyrsta leik.

Nú er sagt að 50 útsendarar frá stærri félögum hafi mætt á völlinn til að fylgjast með Haaland. Manchester United, var eitt þeirra félaga. Ole Gunnar Solskjær, stjóri United þarf hins vegar ekki að sjá mikið af Haland. Hann þjálfaði hann í Molde og gaf honum sinn fyrsta leik í meistaraflokki. Samband þeirra er gott og telja ensk blöð að Solskjær hafi bestu spilin á hendi.

,,Hann hefur haft gríðarleg áhrif á líf mitt, draumur minn er að spila á Englandi. Hann er bæði frábær persóna og þjálfari,“ sagði Haaland um Ole Gunnar Solskjær.

,,Hann vann Meistaradeildina og var magnaður leikmaður, hann hefur kennt mér rosalega mikið.“

,,Hann er frábær persóna og mjög góður þjálfari, hann er ein af ástæðum þess að ég er hér í dag.“

Athugasemdir eru á ábyrgð þeirra sem þær skrá. DV áskilur sér þó rétt til að eyða ummælum sem metin verða sem ærumeiðandi eða ósæmileg. Smelltu hér til að tilkynna óviðeigandi athugasemdir.

Fleiri fréttir

Mest lesið

Nýlegt

433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Sjáðu myndband stórstjörnunnar sem hefur verið harðlega gagnrýnt – „Mamma þeirrra er frá Kamerún og pabbi þeirra frá Nígeríu“

Sjáðu myndband stórstjörnunnar sem hefur verið harðlega gagnrýnt – „Mamma þeirrra er frá Kamerún og pabbi þeirra frá Nígeríu“
433Sport
Fyrir 11 klukkutímum

Eru í miklu sambandi við Trent sem er opinn fyrir því að fara

Eru í miklu sambandi við Trent sem er opinn fyrir því að fara
433Sport
Í gær

Pólverjar ekki alveg með hlutina á hreinu: Þorvaldur óvænt í sviðsljósinu – Sjáðu skondið myndband

Pólverjar ekki alveg með hlutina á hreinu: Þorvaldur óvænt í sviðsljósinu – Sjáðu skondið myndband
433Sport
Í gær

Mbappe bað aldrei um þetta – „Virði hann svo mikið“

Mbappe bað aldrei um þetta – „Virði hann svo mikið“