Ensk blöð velta því nú fyrir sér af hverju David De Gea hafi ekki skrifað undir nýjan samning við Manchester United.
Í sumar var greint frá því að De Gea hefði samþykkt að krota undir nýjan samning við félagið.
Ekkert hefur hins vegar gerst en talið er að samkomulagið að stærstu leyti sé í höfn.
Ensk blöð telja að De Gea muni á endanum skrifa undir en segja að möguleiki sé á að það gerist í janúar.
Þann 1. janúar má De Gea ræða við félög utan Englands en samningur hans í dag er á enda næsta sumar.