Eiður Smári Guðjohnsen var með sögustund í Sjónvarpi Símans í gær, þar ræddi hann um hinn moldríka, Roman Abramovich.
Abramovich er eigandi Chelsea á Englandi, félagið sem Eiður átti magnaðan tíma með. Eigandinn, frá Rússlandi, má hins vegar ekki koma til Englands.
Pólitískar deilur Englands og Rússlands urðu til þess að Abramovich, hefur ekki fengið vegabréfsáritun. Hann getur því ekki mætt á leiki liðsins.
Eiður rifjaði upp þegar Abramovich keypti félagið árið 2003. „Fyrst þegar hann kom var hann mikið inni í klefa hjá okkur, en sagði ekki mikið. Hann var bara að upplifa stemninguna og maður fann að hann var að lifa sig inn í þetta,“ sagði Eiður á Vellinum í gær.
,,Spurningin var þá hversu fljótt myndi fá leið á þessu, hann er ennþá á staðnum og með bullandi áhuga.“
Abramovich elskar Chelsea og hefur mikla ástríðu fyrir félaginu, hann hitti lífvörð hans á dögunum.
,,Ég hitti lífvörð hans á úrslitaleik Evrópudeildarinnar, hann sagði mér að það væri alveg sama hvar þeir væru í heiminum, það væri kveikt á sjónvarpinu til að horfa á Chelsea leik. Hvort sem það er 3 að nóttu til eða 14:00. Hann er með sín tengsl, og er í daglegum viðskiptum við alla hjá félaginu.“
Chelsea hefur byrjað illa í ár og er með eitt stig eftir tvo leiki, Abramovich getur ekki séð sitt lið.
,,Það oft nóg þegar svona maður mætir á svæðið, þá fara menn upp á tærnar.“
,,Mér skilst að það sé mikill söknuður hjá honum að geta ekki verið á vellinum, hann lifði fyrir þessar helgar. Koma á Stamford Bridge, það er búið að draga það út úr honum.“