Umboðsmaður Mesut Özil hefur átt í viðræðum við DC United en félagið leitar sér að stjörnuleikmanni.
Wayne Rooney mun yfirgefa DC United í janúar og gæti Özil fyllt hans skarð.
Arsenal væri tilbúið að selja Özil, hann er launahæsti leikmaður liðsins og er ekki öruggur með sæti í byrjunarliðinu.
Özil er hræddur í London þessa dagana efir að glæpagengi reyndi að ráðast á hann.
Þessi þýski snillingur gæti því orðið nýjasta stjarnan í MLS deildinni eftir áramót.