Leikmenn Burnley eru í betra formi en áður, Sean Dyche stjóri Burnley segir að leikmenn liðsins hafi æft betur en áður.
Burnley byrjaði með látum í ensku úrvalsdeildinni en Jóhann Berg Guðmundsson, skoraði í 3-0 sigri á Southampton.
Burnley heimsækir Arsenal á laugardag í ensku úrvalsdeildinni, erfitt verkefni.
,,Leikmenn komu inn ferskari í hausunum og eru í betra formi en áður,“ sagði Dyche.
,,Þetta er bara að byrja en það er gott að sjá að öll vinnan skilaði sér í góðri byrjun.“