Það er enn talsvert í það að Paul Pogba miðjumaður Manchester United geti spilað, þá aukast vandræðin á miðsvæðinu sökum þess að Scott McTominay er frá.
McTominay meiddist fyrir landsleikjafríið og verður frá næstu vikurnar. ,,Pogba fór í aðra skoðun áður en landsleikirnir fóru af stað, þetta er ekki gróið. Hann er að setja meiri kraft í æfingar, það eru nokkrar vikur í hann. Við vonum að hann spili á þessu ári,“ sagði Ole Gunnar Solskjær.
,,Scotty meiddist á ökkla og hann verður frá í nokkrar vikur. Rojo er líka meiddur. Tuanzebe, Shaw og Matic eru byrjaðir að æfa, þeir eru kannski ekki klárir í að spila.“
United heimsækir Sheffield United á sunnudag í ensku úrvalsdeildinni en liðið hefur hikstað á útivelli í ensku úrvalsdeildinni.