Það er krísa hjá Arsenal og stór hluti stuðningsmanna félagsins vill losna við Unai Emery, stjóra félagsins.
Arsenal bíður erfitt verkefni á morgun er liðið heimsækir lærisveina Brendan Rodgers, í Leicester. Leicester er á flugi og virðist með talsvert betra lið en Arsenal, um þessar mundir.
Arsenal gæti rekið Unai Emery úr starfi ef illa fer á morgun, það er því pressa á liðinu.
Leicester er erfitt heim að sækja en liðið spilar afar skemmtilega knattspyrnu undir stjórn Brendan Rodgers.
Líkleg byrjunarlið í leiknum eru hér að neðan.