Jurgen Klopp, stjóri Liverpool segir að álagið á leikmenn sína sé of mikið. Klopp og félagar leika þétt í desember.
Klopp og félagar taka þá þátt í deildinni, enska deildarbikarnum og HM félagsliða.
,,Það er augljóst að það er of mikið álag,“ sagði Klopp en þetta er ekki í fyrsta sinn sem hann tuðar undan álagi, á leikmenn Liverpool.
Félagið reynir að fá það í gegn að leik liðsins gegn Aston Villa í deildarbikarnum, verði frestað fram í janúar. ,,Það segja allir í leiknum það sama.“
,,Ef þú skoðar álagið sem er á næstunni, deildin og deildarbikarinn. Það gæti verið frábær keppni en svo kemur í janúar, þá eru tveir leikir í undanúrslitum.“
Hér að neðan er dagskrá Liverpool í desember.