Juventus hefur sett verðmiða á Mario Mandzukic, framherja félagsins. Hann er til sölu og fær ekki leyfi til að æfa með liðinu.
Mandzukic er frá Króatíu en Juventus vill 5,4 milljónir punda fyrir framherjann.
Manchester United og Sevilla vilja bæði fá Mandzukic en liðunum vantar sóknarmann.
United vantar reynslu í sóknarlínu sína og gæti Mandzukic fyllt það skarð í janúar. Framherjinn hefur iðulega staðið fyrir sínu.