Granit Xhaka, fyrirliði Arsenal, reif sig úr að ofan og sagði stuðningsmönnum liðsins að fara til fjandans um helgina. Xhaka var tekinn af velli í leik gegn Crystal Palace og þá var baulað hressilega á miðjumanninn.
The Athletic fjallar um málið og segist hafa heimildir fyrir því að Xhaka hafi farið heim, áður en leiknum lauk. Forráðamenn Arsneal hafa svo boðað hann á fund sinn.
,,Þetta er erfitt fyrir hann og liðið, hann er í rusli,“ sagði Unai Emery, fyrir leikinn gegn Liverpol á morgun.
,,Ég talaði við hann í gær og á sunnudags, í morgun líka. Hann æfði í dag en er alveg ónýtur, hann er sorgmæddur yfir stöðunni. Hann legur sig alltaf fram fyrir félagið, hann vill hjálpa.“
,,Hann veit að hann gerði rangt, hann veit það vel. Þetta er eðlilegt sem manneskja, allir leikmenn þurfa stuðning.“