Marcus Rashford framherji Manchester United og Gary Neville fyrrum fyrirliði félagsins, hafa gert góðverk til að hjálpa John frá Bandaríkjunum.
John hefur háð baráttu við alvarlegt krabbamein sem hann hefur nú sigrað, draumur hans hefur verið að fara á leik hjá Manchester United.
Matt Waymont, vinur hans náði að safna fyrir fluginu og gat því boðið John til Manchester. Hann þurfti síðan að redda miðum og hóteli fyrir John.
Hann sendi til Rashford sem græjaði miðana fyrir þá félaga, og Rashford bað svo Neville um að redda gistingu.
Neville á hótel sem er nálægt vellinum og hefur hann nú græjað gistingu fyrir á félaga.