Liverpool verður að öllum líkindum án lykilmanna er liðið heimsækir Genk í Meistaradeildinni á morgun.
Liverpool tók æfingu á Melwood svæðinu í morgun og þar voru ekki Joel Matip og Tren Alexander-Arnold.
Báðir virðast hafa meiðst í jafnteflinu gegn Manchester United á sunnudag.
Mohamed Salah sem var fjarverandi á sunnudag var hins vegar mættur á æfinguna og gæti tekið þátt í leiknum.
Joe Gomez og Dejan Lovren taka líklega stöður þeirra í liðinu á morgun, í leik sem Liverpool ætti að vinna.